|
|
29.07.2007 12:47:31 / kristing
HúnáafmæliídaghúnáafmæliídaghúnáafmælihúnEsterhúnáafmæliídag.HúnerrnítjánáraídaghúnernítjánáraídaghúnernítjánárahúnEsterhúnernítjánáraídag.
Danska hirðin fagnar í dag 19 ára fæðingarafmæli hennar hátignar,
Ester Bergmann, af Smáratúni. Fánar eru dregnir að húni við allar
opinberar byggingar og heimahús og hátíðarhöld verða víða um bæ og
borg í dag. Hennar hátign mun eyða deginum í ró með vinum og
vandamönnum á sumarsetri sínu, Solbakken, sem staðsett er í suð-
vestur hluta Kaupmannahafnar. Ár er síðan hennar hátign, Ester
Bergmann, fagnaði afmæli sínu síðast. Ég ætla ekki að tala um
veðrið. Tignu dömurnar smelltu sér á reiðfákum sínum, þann 16.
Júlí. Leiðin lá til Klampenborgar, sem er svona eitt af úthverfum
Stór-Kaupmannahafnar svæðisins. Þar má finna skemmtigarðinn Bakken
inn í miðjum skóg sem kallast Dyrehaven sem og hina víðfrægu
Bellevue strand. Við höfðum nesti og nýja skó með í för og að
sjálfsögðu okkar forlátu reiðfáka, Summerbird og Fjólu. Þótti Ester
mikið til áhuga Kristínar vinkonu sinnar á hinum ýmsustu dýrum
skógarins koma og gerði óspart grin að henni fyrir frasa eins og;
Hey! Bambi! Annar!!.... 2,3, 6 ESTER! HJÖRÐ!! ÍKORNI, ÞARNA!!
Fengum okkur svo tesopa á veiðisetri konungsfjölskyldunnar,
Eremitage. Indælt. Annars er það helst í fréttum af okkur Solbakka
íbúum að kærkominn gestur er kominn í heimsókn og hyggst dvelja hér
fram til 7. Næsta mánaðar. Hér er ég að sjálfsögðu að tala um hinn
konungborna Alexander Jensen, ástmann afmælisbarnsins. Hann sér
okkur fyrir fjölbreyttu mataræði og spornar við meiriháttar
geðtruflunum sambýlinganna sem var farið að bera heldur mikið á
fyrir komu hans. Héldum við í tilefni af komu kauða á hinn
konunglega matsölustað Papas, rétt við Strikið, föstudagskvöldið
20. Júlí. Kvöldið eftir lá leið okkar í Tívolí með henni Ásdísi,
þar sem þótti kominn tími til að brúka árskort okkar inn í garðinn.
Vinnan gengur sinn vanagang en er þó sífellt að koma okkur á óvart.
Ég er t.d. að vinna með ungum manni sem er lögfræðingur en ákvað að
taka að sér skúringavinnu sem dægrastyttingu! Merkilegt. Síðasta
vika var algjör draumur þar sem við báðum um frí fimmtudag og
föstudag, og fengum það. Fríið var notað vel í afslöppun og að
sinna gestinum þó svo að stalla mín hafa aðallega séð um þá deild.
Fórum svo út að borða á Thai- Corner á föstudagskvöldið þar sem við
fengum gómsætan tælenskan mat, Satay og fleira hnossgæti, þó ekkert
á við Menam matinn góða. Við röltum svo Istedgade þvera og
endilanga áður en við héldum heim á leið í konunglega
áætlunarstrætónum 1A. Í gær buðum við svo Ásdísi litlu í mat og
héldum svo út á lífið í tilefni af afmæli hennar hátignar. Þetta
var ansi hreint skrautlegt kvöld svo að ekki sé meira sagt ? Þetta
er nú orðið heldur langt hjá mér en mér finnst ég verða að koma
þessu að: VIÐ ERUM AÐ FARA TIL TYRKLANDS 11. ÁGÚST      komum
svo heim 19. Kl. 03:00 og eigum svo flug heim á “Klakann” kl.
21:30. Þetta er bara að verða búið, það verður nú gott að komast
heim og hitta alla aftur en þetta er svo sannarlega búið að vera
þess virði að koma hingað! Kveðjur frá Solbakken, Kristín Gjé.
»
15.07.2007 16:31:09 / kristing
Hæhæ  Já enn og aftur er kominn sunnudagur! Þetta er ekkert smá
fljótt að líða! Ja nema kannski þessir 8 tímar þarna á morgnanna,
eða nóttunni öllu heldur, og þó... það líður bara nokkuð hratt
líka. Mætum klukkan 6 skrúbbum 2 ganga, klukkan er orðin 8, við
finnum klósett til að sofa á í klukkara, förum í pásu í annan
slíkan, skrúbbum nokkur klósett (á góðum degi leggjum við okkur
aftur) hádegismatur í klukkutíma og svo bara slugs til svona hálf 2
 Þetta er allavega engin þrælavinna  En það hefur nóg drifið á
okkar daga síðan síðast. Veðurguðirnir eru eitthvað farnir að fýla
okkur, allavega ekki rigning allan daginn, alla daga lengur, 7913!
Á miðvikudaginn fórum við með Hildi og Adda á fótboltaleik í
Bröndby, Bröndby- Auxerres eða e-ð svoleiðis, þvílík stemming og
læti sko  Við erum náttúrulega hardcore fótboltaaðdáendur eins og
kunnugir þekkja  Allavega Bröndby vann  Svo fengum við útborgað
á föstudaginn, ekki seinna vænna þar sem við vorum farnar að borða
rice crispies með vatni út á  E-ð af þessum auðæfum hafa þó gufað
upp á e-n dularfullan hátt, lýsum efir tugum þúsunda sem virðast
hafa horfið út af kortunum okkar á tímabilinu 13. - 14. júlí. :/
Allavega smelltum okkur út að borða á Jensens Böfhus í tilefni
dagsins og enduðum á skralli niðri í bæ með Snæfríði frænku og
vinkonum hennar. Hittum fullt af liði frá Íslandi, fengum risa
blöðrur, uppblásin typpi, peninga, frítt á barinn, teipaða skó,
barmhrós, rós og ég veit ekki hvað og hvað, allavega mjög gaman...
Svo varð klukkan 5.30... Svo varð klukkan 12.30 og við í MALMÖ!!
Eyddum deginum þar í annarlegu ástandi, sofnuðum í hjólabát úti á
vatni, klesstum á brú og allt tekið upp af æstum túristum sem hlógu
sig máttlausa yfir siglingakunnáttu okkar  Segi ekki meir...
Komumst loksins heim á Solbakken, BLAUTAR, því að um leið og við
stigum út úr strætónum hérna við blokkina byrjaði bara að mígleka
úr loftinu og það var EKKI ÞURR BLETTUR á okkur þegar við komum
inn. Eyddum kvöldinu í að endurhlaða batteríin og rifja upp
skandala föstudagskvöldsins  Í dag er svo bara búin að vera
bongóblíða og við hjóluðum út í garð sem er hérna rétt hjá og
"Workuðum tanið" sem er allt að koma til get ég sagt ykkur!  Nú,
í komandi viku eigum við von á gesti sem heitir Alli og ætlar hann
að dvelja hjá okkur um tíma  Gott að fá kokk á heimilið þar sem
eldamennska okkar vinkvenna er ekki upp á marga fiska.  En við
hlökkum nú líka alveg til að fá hann til okkar, kannski sérstaklega
Sterinn  maður veit ekki  En jæja gott í bili, ætla að vekja
litlu Þyrnirós sem sefur værum svefni á bjórkössunum góðu og plata
hana til að hjóla með mér niður á Istedgade í kebab  ' Kristín
Gjé....
»
08.07.2007 18:43:14 / esterb
Við skúrkurnar erum búnar að gera margt síðan síðast Skúra,
skúra, skúra, og alltaf verður það skemmtilegra með hverjum
deginum humm.. þetta drepleiðinlega starf verður til þess að
íbúðin okkar er í rúst! ekki sjéns að við nennum
að þrífa heima þegar að við eyðum 8 tímum á dag í það
að þrífa 38 skrifstofur, 27 klósett og 11 RISA ganga,
svínastígjur og rottubúr!
Veðrið er EKKI að gera það sem við viljum! hér rignir svoleiðis
eins og helt sé úr fötu á hverjum einasta degi! við erum alltaf
jafn mikið að reyna komast hjá því að blotna en það verður bara
ekki hjá því komist, það endar alltaf með því að við förum bara að
hoppa í pollunum Nú tökum dæmi um það hversu mikið veðrið er á
móti okkur hérna, við förum út með sólgleraugu og í kjól en þá
kemur mesta rigning sem hugsast getur, við förum út í úlpu og þá er
20 stiga hiti, við förum inní verslunarmiðstöð að verlsa í staðinn
fyrir að labba strikið og þá er hinn sólríkasti dagur..:/ Þetta fer
nú samt vonandi að breytast
Helgin okkar var mjög kósý, pabbsinn hennar Kristínar kom
og við borðuðum með honum á föstudagskvöldið þar sem bæði
sniglar og steikur voru bornar á borð Við skokkuðum yfir í
Tívolíið seinna um kvöldið og kíktum svo niður í bæ, þegar að mér
var orðið of illt í löppunum til þess að dansa meir féll
Kristín á það ráð að finna bara einhvern sem vildi skipta við mig
um skó Hún var ekkert að finna neina stelpu á okkar aldri sem
hugsanlega notaði sama skónúmer og ég niii hún gékk upp að öllum
mönnunum sem áttu einhverja ljóta lakkskó og notuðu skó númar 47:/
þannig að þessi leit bar ekki mikinn árangur..eða júúú hún spurði
einhvern strák sem elti okkur svo bara allt kvöldið, það var það
sem við fengum fyrir leitina, en með okkar einstöku færni náðum við
að stinga hann af, komum við á makkó og tókum leigubíl heim Við
vöknuðum ferskar á laugardeginum, fórum á strikið og náðum að stela
glösum í búið okkar sem við drukkum úr á café norden svo
plöntuðum við okkur fyrir framan einhvern mann sem teiknaði okkur,
en hann náði nú bara teiknað mig og annað eyrað og augun á
Stínu þegar að löggan rak hann í burtu svo við verðum að fara í
annan slíkann leiðangur seinna En ég er farin að knúsa bestustu
vinkonuna mína
Ester
Bergmann
»
26.06.2007 18:35:16 / kristing
Ja góðan daginn hér...

Eitthvað varð ég að gera mér til dægrastyttinga
þar sem sambýliskona mín liggur í fastasvefni og er búin að vera
utan þjónustusvæðis síðasta eina og hálfa tímann, klukkan er
20:20!
Miðvikudagsmorgunn hinn síðasta vöknuðum við upp
við mjög svo velkomna hringingu. Maðurinn í símanum tjáði okkur það
að við værum hér með komnar með vinnu hjá Vikargruppen í Danmark
sem er afleysingaskrifstofa. Við þáðum starfið með þökkum og
byrjuðum strax á fimmtudaginn að þurrka af stólum... Sem hefði
ekkert verið neitt það slæmt... nema ef það hefði ekki verið í
PARKEN þar sem eru um 45.000 slíkir!!! Það sem við vorum búnar í
grindinni eftir daginn, ég segi ekki meir! En þetta var sem sagt
liður í Undirbúningi fyrir Justin Timberlake tónleikana sem voru
svo þar á laugardaginn. Sunnudagsmorguninn mættum við svo galvaskar
klukkan 6. aftur og týndum ALLT rusl á vellinum sem var í verulega
miklu meira lagi! Takk fyrir túkall!
Eins og maður hafi ekki verið búin að fá nóg af
þrifum fyrir lífstíð eftir þetta, þá hefur okkur verið plantað í
skúringar í allt sumar. Kannski ekkert það allra skemmtilegasta en
djöfulli vel borgað sem er nú fyrir öllu,(meira til að eyða, eða
spara eftir því hvernig skapi við erum í Erum að vinna í
risa lyfjafyrirtæki, reyndar í sitthvorri byggingunni en hittumst
alltaf í hádeginu. Ég var t.d. að þrífa rottubúr og sniglahús í gær
á meðan Ester var að þrífa í e-m gasklefa Allt voða dúbíus og
leynilegt! Afskaplega almennilegt fólk þarna samt sem vill allt
fyrir okkur gera. Reyndar einhver smá misskilningur í gangi um að
við séum kærustur eeeeen við erum ekkert að ergja okkur yfir því

Um helgina skelltum við okkur á smá djemm.
Byrjuðum í kjúkling og frönskum hér heima (já... við borðum það án
gríns á hverjum degi afþví að við kunnum ekkert annað ) og
skáluðum í breezer yfir matnum Fengum smá heimsókn frá Hildi og
Adda en þau voru fljót að forða sér þegar þau sáum í hvað stefndi
Eftir gott GRÆJ skelltum við okkur upp í einhvern strætó og
enduðum einvhers staðar langt frá allri siðmenningu. EN þar sem við
vorum með eindæmum hressar ákváðum við að rölta þessa 40 mín. leið
niður í bæ. Stoppuðum og sníktum bjór á nokkrum stöðum á leiðinni
t.d. á e-m kínastað og Ester ruglaði heilan helling í gæjum frá
Hong Kong.
Ester og kínagaurinn bjórglaði 
Héldum áfram að spara og enn fann Ester partý, nú
í e-m svona Pakistana klúbbi, sem var mjööööög spes, á
Åboulevard. þar fengum við bjór og kex en ákváðum svo að láta okkur
hverfa þegar þeir voru orðnir aðeins of ánægðir með okkur
Löbbuðum niður í bæ þar sem við hittum meðal annars e-a löggu sem
hét Timon og fullt af rugluðu liði. Ester ekki alveg á því að fara
að sofa þegar við komum heim en mér tókst að svæfa hana á
endanum.

Stína IN DA CLUB!! HAHAHAHA 
Hildur systir hafði áhyggjur af félagslegri
einangrun okkar hérna í íbúðinni þar sem allir hlutir heita
mannanöfnum svo að hún tók okkur út að hitta vini þeirra Adda á
laugardaginn. Við vorum við öllu búnar í gammó og stíbbó í eins
peysum og jökkum en enduðum á því að sitja inn á bar með dönnuðu
fólki allt kvöldið og sötra öl, frekar hallærislegar en þetta var
samt fínt Reyndar ekkert svo hressar í Parken 4 tímum
seinna en það er gleymt og grafið. Addi hjálpaði okkur svo að
"ættleiða" tvö ný hjól á leiðinni heim þannig að nú erum við
andskoti vel ríðandi á blökkum fákum 
Jæja ætli ég láti þetta ekki gott heita, er að
verða ansi þreytt og þetta orðið alltof langt. Erum í þvílíkum
erfiðleikum með þennan svefntíma!
Kveðjur heim á klakann, Ester talar upp úr svefni
og heilsar líka 

Stína fína 
»
20.06.2007 20:51:29 / esterb
júbbí:
Jæja þá hefur ýmislegt drifið á daga okkar síðan síðast

KVenleggur fjölskyldu Esterar gerði sér lítið fyrir og flutti
hingað búferlum þann 16. júni. Við ætluðum okkur að sjálfsögðu að
sýna af okkur kurteisi og taka á móti skvísunum á Flugvellinum. Það
var þó ekki vandræðalaust því að í fljótfærni okkar hoppuðum við
upp í vitlausa lest og vorum komin langleiðina til Odense eða
einhvern fjandann áður en við áttuðum okkur á ruglinu. Sem betur
fer vorum við á góðum tíma og rétt náðum að sjá þær skríða útúr
vélinni 
Nú helginni eyddum við mestmegnis með stórfjölskyldunni og
græddum fríar máltíðir í gríð og erg Skruppum til Viby 17. júní
í hátíðarmálsverð til ættmenna Esterar sem var bara huggulegt.
Á mánudaginn fórum við svo Í Tívolí með Sylvíu og fórum í öll
þessi helstu tæki nema Ester fékk skyndilega hausverk þegar kom að
stærsta tækinu... greyið 
Við vorum orðnar aaaðeins vonlausar í gær með vinnu, búnar að
fara tvisvar niðrá afleysingaskrifstofuna sem við sóttum um á og
ekkert bólaði á vinnu... Okkur varð því heldur betur bilt við í
morgun, eða öllu heldur í hádeginu (samt bara að vakna þegar
hann Allan vinur okkar bjallaði í okkur og sagðist vera búinn að
finna vinnu fyrir okkur. Við verðum sem sagt að vinna sem
ræstitæknar hjá e-u kompaníi í Ballerup á kreysí launum. Erum að
vinna mánudaga- föstud frá 6-14 sem er bara gott! Ekki nóg með það
heldur bauð hann okkur að vinna í kringum Justin Timberlake
tónleikana um helgina og erum við að fara að vakna klukkan 6.30 í
fyrramálið að gera og græja í Parken! Stuuuuð!
Svo erum við bara búnar að vera að lifa ljúfa lífinu, labba um
niðrí bæ og skoða í búðir og svona 
Sem sagt allt alveg himneskt að frétta héðan 
Kærar kveðjur Ester og Kristín 
»
16.06.2007 22:20:12 / kristing

Eldhússkáparnir eru alveg mega skrautlegir 

Ester að þrífa, dugði ekkert minna en eyrnapinnar og
sótthreinsispritt!

VIð erum alltaf að spara og því kjörið að taka gamalt yfirgefið
hjól að sér 

Við hæstánægðar með nýju heimkynnin 

Ester og óróinn í svefnherberginu sem á það til að hringsnúast
og hristast í logni ??

Rúmið góða! eins og sjá má er þetta hið gjörvilegasta rúm, gert
úr bjórkössum og vörubrettum 

Fyrsta máltíðin á Solbakken, þurftum smá aðstoð við að sjóða
pastað 

Eldhúsið okkar skartar þvílíkum design karrýgulum stólum!

Séð úr Eldhúsinu og á ganginn, takið eftir APPELSÍNUGULU
kommóðunni 

Stofan góða þar sem er ekki þverfótað fyrir húsgögnum!

Sófinn er víst svefnsófi, höfum ekki enn fengið hann til að
fúnkera en erum þó búnar að átta okkur á að hann tekur ekki
mkikið fleiri en 1 manneskju eða tvær mjög ástfangnar!

Við í Bjútítrítment! Ættuð bara að sjá hvað við erum orðnar
fallegar! 

Sææææææææætt
Bara nokkrar myndir til að gefa tóninn fyrir komandi daga 
Ester Chester og stína fína 
»
15.06.2007 10:23:19 / esterbergmann
|
vorum að vakna og vöknuðum við bara snemma þannan daginn,
sennilega vegna óvild bjórkassanna í okkar garð
Veðrið er ekki alveg jafn miklu kjólaskapi og við en lífið er jú
ýmist fjara eða flóð 
Við erum duglegar að spara, veljum aðeins allt það ódýrasta í
NETTO og þræddum alla Istegade í leit að ódýrustu jarðaberjunum,
hæst ber þó að nefna í sparnaðaráætlun okkar ruppltúrinn okkar í
gær en þá vorum við staddar á Enghave station sem er heimastöðin
okkar, þar var Ester litið á heldur betur álitlegann reiðfák sem lá
þarna einn og yfirgefinn, tókum við hann traustum tökum þar sem
hann leit ekki beinlínis út fyrir að vera margra milljóna króna
virði og ólæstur í þokkabót Í dag er hún Fjóla á flötum í dekkjum
og ískrar alveg ískyggilega mikið í henni. Nú eftir svona góða
veiði í hjólabransanum ákváðum við að leita aftur út eftir kvöldmat
í leit að öðru yrirgefnu hjóli, en þrátt fyrir að hafa leitað í
þyrnirunnum og hætt lífi okkar á hraðbrautum bar leitin lítinn
árangur eeeen við höldum ótrauðar áfram í dag
erum á leiðinni niðrí bæ að hitta
stórfjölskylduna;* |
|
|
»
13.06.2007 20:26:25 / kristing
|
Jæja tha erum vid komnar til Kongens København! Lentum um hadegi
i gær og heldum rakleidis a Solbakken sem eru studentagardarnir sem
vid buum a. Thar tok vid okkur ansi hreint skemmtileg ibud sem
hefur allt tad ad pryda sem thotti heitast arid 1970, allt grænt og
appelsinugult, meira ad segja drullusokkurinn Nu rumid er ekki
af verri kantinum heldur er thad heimatilbuid ur bjorkossum og
vorubrettum, alveg hreint magnadur andskoti, eilitid hart en thad
er bara betra Komum med myndir af thessu ollu saman von bradar.

Nu svo forum vid og sottum um vinnu hja Vikargruppen i Danmark i
dag og fengum eiginlega bara vinnu, thad verdur bara hringt i okkur
thegar thau finna e-d ad gera handa okkur Thannig ad
aaaaaaaaallt alveg FRAB hedan....
Kærar kvedjur ur goda vedrinu i Køben
Ester og Kristin
Og ja vid viljum bref a adress: Ester og Kristin CO/ Hildur
Gestsdottir
Rektorparken 22, 10. tv.
2450
København sv.
København |
|
Og sms eda hringingar i sima : Kristin : 27419480
Ester: 27419710
Hejhej 
»
23.05.2007 00:50:42 / kristing
S-ÆL-ir! Jæja við Sterinn höfum ákveðið að leyfa landanum njóta
okkar að nýju, þó einvörðungu í gegnum veraldarvefinn, annað verður
að sækja um sérstaklega í síma 482-3744 (Gestur) eða 482-1197
(Halldór ). Þannig er nú mál með vexti að við munum leggja land
undir fót og flýja frá okkar íðilfagra skeri, þann 12. júní
næstkomandi og halda í höfuðborg villta vestursins eða svo gott
sem, nefnilega Kaupmannahafnar. Þar ætlum við að leika okkur í
sumar  Víííí´úúúúúú  Yfir og út Kristín og Bjóla (Ester)
»
06.08.2006 19:17:52 / esterb
»
01.08.2006 19:45:40 / esterb
Eg er ennta a lifi tott otrulegt se..fekk engan morgunmat i
morgun og tad eina sem eg fekk i kvoldmat var laufbladakal og
kotasaela.. tegar eg blogga tala eg ekki um annad en mat, en tad
bara kemst ekkert annad fyrir hja mer en matur eg er svo endalaust
svong
Annars gengur tetta vel og eg er alveg ad taekla tessu ensku
var ad skipta um bekk og tetta er allt saman ordid skomminni skarra
en i sidustu viku..svo fer lika ad styttast i ad eg komi heim get
ekki bedid eftir ad hitta ykkur og fa mer islenskt vatn!! ooog
feitan mat
Tetta vedur herna er samt gedklofi!! Eg vaknadi, dro gardinurnar
fra og sa ekkert nema bara solina og auda himininn svo eg akvad ad
fara i nyju sumarfotunum minum sem eg keypti i gaer oooog leggja a
mig halftima labbitur til ad sletta a mer harid adur en skolinn
myndi byrja eg er nebbla bokstaflega buin ad vera eins og
fuglahraeda til fara sidan eg kom hingad En eg allavega for
til Sylviu og sletti a mer harid, setti a mig maskara svona rett
svo eg gleymi ekki taekninni en tegar tetta stuss var buid
akvadum vid ad fara heim til min ad saekja baekurnar adur en
skolinn byrjadi og vid erum ad tala um halftima labb tangad, en
neeeeiii vid vorum rett lagdar af stad tegar tessi hevi rigning
byrjadi, eg hef sko sjaldan lent i odru eins.. og tad rigndi bara
gjorsamlega eins og hellt vaeri ur fotu alla fokking leidina heim
til min svo eg turfti ad fara i gomlu dulurnar aftur, med maskara
uta kinn og krullad har i skolann i dag En svona er vedrid
her madur veit aldrei a hverju madur a von
Annars aetladi eg nu ad hitta bekkinn minn nidra strond i kvold,
veit ekki hvort eg nenni, hef enga orku til ad labba nidri bae..eg
fae nebbla ekkert tad mikla orku a dag
sidan er vist einhver klikkadur Kobbi her, hehe veit nu ekki
hvar Kristin fekk taer upplysingar en ef tad er satt a hann ad geta
gert ymislegt sem eg kemst alveg agaetlega og bara mjog vel af an
tarf endilega ad spyrja host familyuna mina betur um hvar hann
felur sig, vil ekki verda a vegi hans!!
LOTS OF LOVE
ESTER
»
29.07.2006 18:43:35 / esterb
»
27.07.2006 20:44:12 / esterb
»
25.07.2006 20:25:02 / esterb
»
24.07.2006 20:40:36 / esterb
hae  eg er herna i 40 stiga hita, gerist ekki betra  sidan verd
eg ordin -7 kilo tegar eg kem heim, by nebbla hja graenmetisaetum
og eg fae ekkert mikid meira en eina selleristong i kvoldmat og var
sidan skrad a itrottabraut og eg sem hef ekkert vit a itrottum
og skil ekki reglurnar atti taer eru a ensku  annars by eg
hja godu folki nema tau eiga 4 ulfa og mer fellur ekkert alltof vel
vid ta, svo eiga tau barnaborn sem hanga utan i mer ALLAN daginn!!
var til daemis i myllu med teim i svona 3 tima i gaer atti eg kunni
ekki ad segja ad eg nennti tessu ekki lengur:/ en eg aetla ad fara
ad rollta heim adur en raeningjarnir fara a stja hlakka til ad sja
ykkur
»
Síður: 1 2 3 4
|
|