15.06.2007 10:23:19 / esterbergmann
dagur 4 :)
|
vorum að vakna og vöknuðum við bara snemma þannan daginn,
sennilega vegna óvild bjórkassanna í okkar garð
Veðrið er ekki alveg jafn miklu kjólaskapi og við en lífið er jú
ýmist fjara eða flóð 
Við erum duglegar að spara, veljum aðeins allt það ódýrasta í
NETTO og þræddum alla Istegade í leit að ódýrustu jarðaberjunum,
hæst ber þó að nefna í sparnaðaráætlun okkar ruppltúrinn okkar í
gær en þá vorum við staddar á Enghave station sem er heimastöðin
okkar, þar var Ester litið á heldur betur álitlegann reiðfák sem lá
þarna einn og yfirgefinn, tókum við hann traustum tökum þar sem
hann leit ekki beinlínis út fyrir að vera margra milljóna króna
virði og ólæstur í þokkabót Í dag er hún Fjóla á flötum í dekkjum
og ískrar alveg ískyggilega mikið í henni. Nú eftir svona góða
veiði í hjólabransanum ákváðum við að leita aftur út eftir kvöldmat
í leit að öðru yrirgefnu hjóli, en þrátt fyrir að hafa leitað í
þyrnirunnum og hætt lífi okkar á hraðbrautum bar leitin lítinn
árangur eeeen við höldum ótrauðar áfram í dag
erum á leiðinni niðrí bæ að hitta
stórfjölskylduna;* |
|
|