Ester Bergmann og Kristín Gjé
20.06.2007 20:51:29 / esterb

Við erum að fara í sleik við Timberlake! :D

júbbí::D

 Jæja þá hefur ýmislegt drifið á daga okkar síðan síðast :)

KVenleggur fjölskyldu Esterar gerði sér lítið fyrir og flutti hingað búferlum þann 16. júni. Við ætluðum okkur að sjálfsögðu að sýna af okkur kurteisi og taka á móti skvísunum á Flugvellinum. Það var þó ekki vandræðalaust því að í fljótfærni okkar hoppuðum við upp í vitlausa lest og vorum komin langleiðina til Odense eða einhvern fjandann áður en við áttuðum okkur á ruglinu. Sem betur fer vorum við á góðum tíma og rétt náðum að sjá þær skríða útúr vélinni :)

Nú helginni eyddum við mestmegnis með stórfjölskyldunni og græddum fríar máltíðir í gríð og erg :D Skruppum til Viby 17. júní í hátíðarmálsverð til ættmenna Esterar sem var bara huggulegt.

Á mánudaginn fórum við svo Í Tívolí með Sylvíu og fórum í öll þessi helstu tæki nema Ester fékk skyndilega hausverk þegar kom að stærsta tækinu... greyið ;)

Við vorum orðnar aaaðeins vonlausar í gær með vinnu, búnar að fara tvisvar niðrá afleysingaskrifstofuna sem við sóttum um á og ekkert bólaði á vinnu... Okkur varð því heldur betur bilt við í morgun, eða öllu heldur í hádeginu (samt bara að vakna :) þegar hann Allan vinur okkar bjallaði í okkur og sagðist vera búinn að finna vinnu fyrir okkur. Við  verðum sem sagt að vinna sem ræstitæknar hjá e-u kompaníi í Ballerup á kreysí launum. Erum að vinna mánudaga- föstud frá 6-14 sem er bara gott! Ekki nóg með það heldur bauð hann okkur að vinna í kringum Justin Timberlake tónleikana um helgina og erum við að fara að vakna klukkan 6.30 í fyrramálið að gera og græja í Parken! Stuuuuð!

Svo erum við bara búnar að vera að lifa ljúfa lífinu, labba um niðrí bæ og skoða í búðir og svona :D

Sem sagt allt alveg himneskt að frétta héðan :D

Kærar kveðjur Ester og Kristín :)

Solla og Gummi skrifaði
Elsku músin okkar, ekki leiðinlegt að hefja starfsferilinn í DK með því að vinna á þessum tónleikum. Ég spái að þetta sé rétt að byrja hjá ykkur, verðið komnar í celebrity hringiðuna áður en vitið af :oD biðjum að heilsa Kristínu. Knús krúsímús, Solla og Gummi frændi p.s Hrafn sendir riiiiisaknús ;o) p.p.s gangið hægt um gleðinnar dyr :o)
ólöf ;D skrifaði
Heeeyrðu jæja þá er maður komin á klakan aftur ;D! ég varð ekkert smá hissa þegar að eg fretti þetta að þið væruð nú bara komin með vinnu á justin það er nú meira ;) flott hja ykkur ;* enn ég heyri í ykkur! og það var gaman að kíkja til ykkar og sjá íbúðina og svona hja ykkur þetta er unaður ;D;*
dóra ha? skrifaði
bið að heilsa Justin.. ;)
Biggie skrifaði
bið líka að heilsa hr. Timburfljóti ;-) kv. grillpylsuglaði nágranninn!!!
Heiðrún Erna skrifaði
Nenniði að skila kærum þökkum fyrir gærkvöldið til hans? Okey takk!
Hugrún skrifaði
Til hamingju með vinnuna:*
Anna Stefanía skrifaði
En gaman að heyra að þið séu komnar með vinnu, ég ætlaði að fara deila sumarlaununum mínum með ykkur:) hehe... Til hamingju barasta:** Justin er góður gæi:) Gangi ykkur rosa vel:) mange islenske kus og kram:*******

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.