Ester Bergmann og Kristín Gjé
26.06.2007 18:35:16 / kristing

Aldeilis hlessa! ha svefnklessa???

Ja góðan daginn hér...

Eitthvað varð ég að gera mér til dægrastyttinga þar sem sambýliskona mín liggur í fastasvefni og er búin að vera utan þjónustusvæðis síðasta eina og hálfa tímann, klukkan er 20:20!

Miðvikudagsmorgunn hinn síðasta vöknuðum við upp við mjög svo velkomna hringingu. Maðurinn í símanum tjáði okkur það að við værum hér með komnar með vinnu hjá Vikargruppen í Danmark sem er afleysingaskrifstofa. Við þáðum starfið með þökkum og byrjuðum strax á fimmtudaginn að þurrka af stólum... Sem hefði ekkert verið neitt það slæmt... nema ef það hefði ekki verið í PARKEN þar sem eru um 45.000 slíkir!!! Það sem við vorum búnar í grindinni eftir daginn, ég segi ekki meir! En þetta var sem sagt liður í Undirbúningi fyrir Justin Timberlake tónleikana sem voru svo þar á laugardaginn. Sunnudagsmorguninn mættum við svo galvaskar klukkan 6. aftur og týndum ALLT rusl á vellinum sem var í verulega miklu meira lagi! Takk fyrir túkall!

Eins og maður hafi ekki verið búin að fá nóg af þrifum fyrir lífstíð eftir þetta, þá hefur okkur verið plantað í skúringar í allt sumar. Kannski ekkert það allra skemmtilegasta en djöfulli vel borgað sem er nú fyrir öllu,(meira til að eyða, eða spara eftir því hvernig skapi við erum í :) Erum að vinna í risa lyfjafyrirtæki, reyndar í sitthvorri byggingunni en hittumst alltaf í hádeginu. Ég var t.d. að þrífa rottubúr og sniglahús í gær á meðan Ester var að þrífa í e-m gasklefa :S Allt voða dúbíus og leynilegt! Afskaplega almennilegt fólk þarna samt sem vill allt fyrir okkur gera. Reyndar einhver smá misskilningur í gangi um að við séum kærustur eeeeen við erum ekkert að ergja okkur yfir því :P

Um helgina skelltum við okkur á smá djemm. Byrjuðum í kjúkling og frönskum hér heima (já... við borðum það án gríns á hverjum degi afþví að við kunnum ekkert annað :S) og skáluðum í breezer yfir matnum:) Fengum smá heimsókn frá Hildi og Adda en þau voru fljót að forða sér þegar þau sáum í hvað stefndi :P Eftir gott GRÆJ skelltum við okkur upp í einhvern strætó og enduðum einvhers staðar langt frá allri siðmenningu. EN þar sem við vorum með eindæmum hressar ákváðum við að rölta þessa 40 mín. leið niður í bæ. Stoppuðum og sníktum bjór á nokkrum stöðum á leiðinni t.d. á e-m kínastað og Ester ruglaði heilan helling í gæjum frá Hong Kong.

 

Ester og kínagaurinn bjórglaði :)

Héldum áfram að spara og enn fann Ester partý, nú í  e-m svona Pakistana klúbbi, sem var mjööööög spes, á Åboulevard. þar fengum við bjór og kex en ákváðum svo að láta okkur hverfa þegar þeir voru orðnir aðeins of ánægðir með okkur :P Löbbuðum niður í bæ þar sem við hittum meðal annars e-a löggu sem hét Timon og fullt af rugluðu liði. Ester ekki alveg á því að fara að sofa þegar við komum heim en mér tókst að svæfa hana á endanum.

Stína IN DA CLUB!! HAHAHAHA :P

Hildur systir hafði áhyggjur af félagslegri einangrun okkar hérna í íbúðinni þar sem allir hlutir heita mannanöfnum svo að hún tók okkur út að hitta vini þeirra Adda á laugardaginn. Við vorum við öllu búnar í gammó og stíbbó í eins peysum og jökkum en enduðum á því að sitja inn á bar með dönnuðu fólki allt kvöldið og sötra öl, frekar hallærislegar en þetta var samt fínt :) Reyndar ekkert svo hressar í Parken 4 tímum seinna en það er gleymt og grafið. Addi hjálpaði okkur svo að "ættleiða" tvö ný hjól á leiðinni heim þannig að nú erum við andskoti vel ríðandi á blökkum fákum ;)

Jæja ætli ég láti þetta ekki gott heita, er að verða ansi þreytt og þetta orðið alltof langt. Erum í þvílíkum erfiðleikum með þennan svefntíma!

Kveðjur heim á klakann, Ester talar upp úr svefni og heilsar líka :)

Stína fína :)

Stebbi skrifaði
slæmt að Ester tók bara með sér eina peysu til DK :S
Kristín Gjé skrifaði
bjáni! þetta er allt sama kvöldið :P
Ester Bergmann skrifaði
já glöggir lesendur sjá kannski að Kristín tók líka bara með sér einn jakka!! ;) þessi Stebbi dúlla sko:) Skiptir þú kannski um föt á hálftíma fresti á djamminu?? :P
Ásdís danska:) skrifaði
hehe dúllur:D ég á síðan inni hjá ykkur e-ð svakalegt djamm þegar að ég kem aftur:D gengur ekkert að sitja bara og sötra bjór og taka síðan bara vitlausa strætóá út um allt.. þarf greinilega e-ð að skoða þetta hjá ykkur:)
Hugrún skrifaði
Hæhæ kjútípæs;) Mikið er gaman að lesa bloggin ykkar og fylgjast með ykkur, að þið farið ykkur nú ekki að voða! Passið ykkur nú samt á útlendingunum, mér finnst þið klikkaðar... heheh! Lovjús;* (Fleirtölu s-ið)
Anna Stefanía skrifaði
Þið eruð svo skondnar snúllur:) en ég er sammála síðasta ræðumanni:) sakna ykkar:***
Óttar skrifaði
Vóó hörku stemming í Dk væri til í svona flipp eitt sumar skárra en að hanga á síld :S hehe en skemmtu þér Ester ;**
Solla "frænka" ;o) skrifaði
Heyriði.. eruð þið komnar með nýtt blogg eða er bara ekkert að gerast hjá ykkur? :o) Knús Solla G.K biður örugglega að heilsa :o)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.