Hæhæ

Já enn og aftur er kominn sunnudagur! Þetta er ekkert smá
fljótt að líða! Ja nema kannski þessir 8 tímar þarna á morgnanna,
eða nóttunni öllu heldur, og þó... það líður bara nokkuð hratt
líka. Mætum klukkan 6 skrúbbum 2 ganga, klukkan er orðin 8, við
finnum klósett til að sofa á í klukkara, förum í pásu í annan
slíkan, skrúbbum nokkur klósett (á góðum degi leggjum við okkur
aftur) hádegismatur í klukkutíma og svo bara slugs til svona hálf 2

Þetta er allavega engin þrælavinna

En það hefur nóg drifið á
okkar daga síðan síðast. Veðurguðirnir eru eitthvað farnir að fýla
okkur, allavega ekki rigning allan daginn, alla daga lengur, 7913!
Á miðvikudaginn fórum við með Hildi og Adda á fótboltaleik í
Bröndby, Bröndby- Auxerres eða e-ð svoleiðis, þvílík stemming og
læti sko

Við erum náttúrulega hardcore fótboltaaðdáendur eins og
kunnugir þekkja

Allavega Bröndby vann

Svo fengum við útborgað
á föstudaginn, ekki seinna vænna þar sem við vorum farnar að borða
rice crispies með vatni út á

E-ð af þessum auðæfum hafa þó gufað
upp á e-n dularfullan hátt, lýsum efir tugum þúsunda sem virðast
hafa horfið út af kortunum okkar á tímabilinu 13. - 14. júlí. :/
Allavega smelltum okkur út að borða á Jensens Böfhus í tilefni
dagsins og enduðum á skralli niðri í bæ með Snæfríði frænku og
vinkonum hennar. Hittum fullt af liði frá Íslandi, fengum risa
blöðrur, uppblásin typpi, peninga, frítt á barinn, teipaða skó,
barmhrós, rós og ég veit ekki hvað og hvað, allavega mjög gaman...
Svo varð klukkan 5.30... Svo varð klukkan 12.30 og við í MALMÖ!!
Eyddum deginum þar í annarlegu ástandi, sofnuðum í hjólabát úti á
vatni, klesstum á brú og allt tekið upp af æstum túristum sem hlógu
sig máttlausa yfir siglingakunnáttu okkar

Segi ekki meir...
Komumst loksins heim á Solbakken, BLAUTAR, því að um leið og við
stigum út úr strætónum hérna við blokkina byrjaði bara að mígleka
úr loftinu og það var EKKI ÞURR BLETTUR á okkur þegar við komum
inn. Eyddum kvöldinu í að endurhlaða batteríin og rifja upp
skandala föstudagskvöldsins

Í dag er svo bara búin að vera
bongóblíða og við hjóluðum út í garð sem er hérna rétt hjá og
"Workuðum tanið" sem er allt að koma til get ég sagt ykkur!

Nú,
í komandi viku eigum við von á gesti sem heitir Alli og ætlar hann
að dvelja hjá okkur um tíma

Gott að fá kokk á heimilið þar sem
eldamennska okkar vinkvenna er ekki upp á marga fiska.

En við
hlökkum nú líka alveg til að fá hann til okkar, kannski sérstaklega
Sterinn

maður veit ekki

En jæja gott í bili, ætla að vekja
litlu Þyrnirós sem sefur værum svefni á bjórkössunum góðu og plata
hana til að hjóla með mér niður á Istedgade í kebab

' Kristín
Gjé....