HúnáafmæliídaghúnáafmæliídaghúnáafmælihúnEsterhúnáafmæliídag.HúnerrnítjánáraídaghúnernítjánáraídaghúnernítjánárahúnEsterhúnernítjánáraídag.
Danska hirðin fagnar í dag 19 ára fæðingarafmæli hennar hátignar,
Ester Bergmann, af Smáratúni. Fánar eru dregnir að húni við allar
opinberar byggingar og heimahús og hátíðarhöld verða víða um bæ og
borg í dag. Hennar hátign mun eyða deginum í ró með vinum og
vandamönnum á sumarsetri sínu, Solbakken, sem staðsett er í suð-
vestur hluta Kaupmannahafnar. Ár er síðan hennar hátign, Ester
Bergmann, fagnaði afmæli sínu síðast. Ég ætla ekki að tala um
veðrið. Tignu dömurnar smelltu sér á reiðfákum sínum, þann 16.
Júlí. Leiðin lá til Klampenborgar, sem er svona eitt af úthverfum
Stór-Kaupmannahafnar svæðisins. Þar má finna skemmtigarðinn Bakken
inn í miðjum skóg sem kallast Dyrehaven sem og hina víðfrægu
Bellevue strand. Við höfðum nesti og nýja skó með í för og að
sjálfsögðu okkar forlátu reiðfáka, Summerbird og Fjólu. Þótti Ester
mikið til áhuga Kristínar vinkonu sinnar á hinum ýmsustu dýrum
skógarins koma og gerði óspart grin að henni fyrir frasa eins og;
Hey! Bambi! Annar!!.... 2,3, 6 ESTER! HJÖRÐ!! ÍKORNI, ÞARNA!!
Fengum okkur svo tesopa á veiðisetri konungsfjölskyldunnar,
Eremitage. Indælt. Annars er það helst í fréttum af okkur Solbakka
íbúum að kærkominn gestur er kominn í heimsókn og hyggst dvelja hér
fram til 7. Næsta mánaðar. Hér er ég að sjálfsögðu að tala um hinn
konungborna Alexander Jensen, ástmann afmælisbarnsins. Hann sér
okkur fyrir fjölbreyttu mataræði og spornar við meiriháttar
geðtruflunum sambýlinganna sem var farið að bera heldur mikið á
fyrir komu hans. Héldum við í tilefni af komu kauða á hinn
konunglega matsölustað Papas, rétt við Strikið, föstudagskvöldið
20. Júlí. Kvöldið eftir lá leið okkar í Tívolí með henni Ásdísi,
þar sem þótti kominn tími til að brúka árskort okkar inn í garðinn.
Vinnan gengur sinn vanagang en er þó sífellt að koma okkur á óvart.
Ég er t.d. að vinna með ungum manni sem er lögfræðingur en ákvað að
taka að sér skúringavinnu sem dægrastyttingu! Merkilegt. Síðasta
vika var algjör draumur þar sem við báðum um frí fimmtudag og
föstudag, og fengum það. Fríið var notað vel í afslöppun og að
sinna gestinum þó svo að stalla mín hafa aðallega séð um þá deild.
Fórum svo út að borða á Thai- Corner á föstudagskvöldið þar sem við
fengum gómsætan tælenskan mat, Satay og fleira hnossgæti, þó ekkert
á við Menam matinn góða. Við röltum svo Istedgade þvera og
endilanga áður en við héldum heim á leið í konunglega
áætlunarstrætónum 1A. Í gær buðum við svo Ásdísi litlu í mat og
héldum svo út á lífið í tilefni af afmæli hennar hátignar. Þetta
var ansi hreint skrautlegt kvöld svo að ekki sé meira sagt ? Þetta
er nú orðið heldur langt hjá mér en mér finnst ég verða að koma
þessu að: VIÐ ERUM AÐ FARA TIL TYRKLANDS 11. ÁGÚST





komum
svo heim 19. Kl. 03:00 og eigum svo flug heim á “Klakann” kl.
21:30. Þetta er bara að verða búið, það verður nú gott að komast
heim og hitta alla aftur en þetta er svo sannarlega búið að vera
þess virði að koma hingað! Kveðjur frá Solbakken, Kristín Gjé.