Ester Bergmann og Kristín Gjé
13.2.2008 05:14:37 / kristing

Tignar dömur ;)

   Já við erum tvær tignar stúlkur með afbrigðum, búsettar í höllum vorum, í heiðursbænum sem hnakkabærinn Selfoss er, ásamt okkar konungbornu fjölskyldum. Við erum jafnar að árum, fæddar á því herrans ári sem 1988 var og erum við, öllu jafna, sáttar við það. Okkar helsta áhugamál er að leika á slaghörpu á dimmum vetrarkvöldum, helst fjórhenta sonnettu eftir Wolfgang Amadeus Mozart, fyrir fullum sal af þjóðhöfðingjum og fyrirfólki heimsins. Á milli þessara, þó mjög svo tíðu, atburða, stundum við listskautahlaup af kappi samhliða vatnsdansi, refaveiðum, krikketi og svo síðast en ekki síst löngum og heitum bubbluböðum. Hér erum við í kokteilboði hjá Mette-Marit krónprinsessu Norðmanna fyrr í haust, Lafði Ester Bergmann til vinstri og Lafði Kristín Gjé til hægri.