Ester Bergmann og Kristín Gjé
13.2.2008 05:14:37 / esterb

Ester Bergmann

Það er nú svo í þessum hverfula heimi sem við lifum í að allir þarfnast góðra vina.  Ég er þeirri gæfu aðnjótandi að eiga nokkur eintök af þvílíku. Eitt þeirra er engin önnur en eðalskvísan hún Ester Bergmann Halldórsdóttir, stúlka á 18. ári lífs síns og býr hér á Selfossi líkt og undirrituð. Ester er afburðafögur stúlka, vekur mikla eftirtekt hvar sem hún kemur og bræðir hjarta hins kynsins (og jafnvel kynsystra okkar einnig, en ég hef nú ekki orðið jafnmikið vör við það).  Hún er ljóshærð með sítt hár og himinblá og seiðandi stór augu. E-r prinsinn komst svo að orði að augu hennar minntu hann á það sem Halldór sagði við Auði á Þingvöllum; Viltu kveikja í vindlingnum mínum með augunum þínum? Speeeeeeeeeeeeeeeeeees! ;)

Þrátt fyrir einstaklega fallega ytri umgjörð leynist mun suddalegri hlið hið innra og ýmislegt misfagurt fellur úr hennar annars íðilfagra munni sem ekki er prenthæft.

Annars er ekkert nema gaman af henni Ester minni og skemmtum við okkur ávallt konunglega eins og okkar er von og vísa (enda komnar af norrænum konungaættum, þess má geta að Haraldur hárfagri er einmitt forfaðir okkar beggja og erum við því tíðir gestir í hirðveislum norsku konungsfjölskyldunnar) þegar við erum saman, sem er nú bara svona nokkurn vegin alltaf J

Það er ekki hægt að segja að það sé lognmolla í kringum kjelluna því að stúlkan er alltaf á fleygiferð og gustar svoleiðis úr bakhlutanum á henni þegar hún er í stuði, þá er ég ekki að tala um vindgang eða e-ð í þá áttina heldur er hún full af orku stelpan sem er ekkert nema frábært. Ég held að ástæðan fyrir því að við Sterinn höfum nánast verið óaðskiljanlegar í nokkur ár sé sú að við erum ansi líkar í skapi og háttum;  Við þrífumst hvergi betur en í margmenni, hugsum ekki rass áður en við framkvæmum, erum algjörar brussur og sjitt fljótfærnar en við skemmtum okkur nú bara yfr því eins og öllu öðru.

Það fer nú ekkert mikið fyrir skynseminni hjá henni Ester minni en þá kem ég nú iðulega sterk inn í leikinn sem er ekki nema gott mál ;)

Samverustundir okkar einkennast yfirleitt af truflaðri vitleysu og gæti ég nefnt óteljandi dæmi um það en ég er að hugsa um að sleppa því þar sem það gæti skaðað mannorð okkar allverulega, sem er kannski ekki á gífurlega háum stalli fyrir ;)

Þó að við vorum  nú búnar að samþykkja það að vera ekki með e-a væmni eins og gengur og gerist í svona löguðu þá verð ég nú bara að segja það að hún Ester er bara frábær og ég veit ekki hvar ég væri ef ekki væri fyrir hennar tilstilli, allavega ekki að skemmta mér svona líka gríðarlega sérhvern dag yfir ruglinu í hausnum á henni. SNILLDARBARN!! :*

 

P.S. For gúddness seiks!!ef þið berjið augum steingráan geimferðabíl spennið beltin og farið út í kant! Þessi stúlka er sannkallaður ógnvaldur götunnar og svo mundi ég heldur ekki reyna að ræða við hana á erlendum tungumálum, það er ekki vinsælt ;)

 

 

 

Kristín Gjé!