Ester Bergmann og Kristín Gjé
13.2.2008 05:14:37 / esterb

Kristín Gjé

Óhætt er að segja að vinkona eins og Kristín er vandfundin!

Kristín Gestsdóttir leit dagsins ljós í fyrsta sinn þann 8. desember árið 1988, en hún byrjaði snemma að heilla nánasta umhverfi sitt með miklum leiklistahæfileikum sem komu í ljós strax eftir að hún náði tökum á íslenskri tungu..

Leiðir okkar lágu saman fyrir um það bil 3 árum þegar ég gróf hana uppúr einni holunni, og höfum við verið óaðskiljanlegar síðan. Vinskapur okkar Kristínar einkennist einna helst af miklum snilligáfum...eða NEEEEI! Byrjum aftur ;)

Vinskapur okkar Kristínar einkennist einna helst af frjóu ímyndunarafli, sem leiðir oftar en ekki til þess að við önum útí eitthvað sem ENGUM myndi detta í hug að gera, sumt fáránlegt en annað mun fáránlegra.

            Kristín á mjög auðvelt með að vinna hug og hjörtu þeirra sem í kringum hana eru með sinni yndislegu nærveru og ruglinu sem vellur uppúr henni eins og hún fái borgað fyrir það ooog það allt í stórhátíðarkaupi. Kristín er svo sannarlega vinur vina sinna og er alltaf tilbúin til þess að rétta hjálparhönd ef mann vantar þá þriðju, jafnvel þá fjórðu. Við vinkonurnar erum báðar mjög fljóthuga og gengur því oft mikið á fyrir okkur hvort sem   það er í leik eða starfi. Það er eiginlega óhjákvæmilegt að flugan á veggnum okkar sé heil, maður hlýtur að skemmast eitthvað við að horfa á okkar daglegu athafnir sem verða yfirleitt mjögt skrautlegar, veltum því samt oft fyrir okkur afhverju annað fólk sleppur frá nákvæmlega sömu hlutum á mun auðveldari hátt...:/ En eftir margra stunda íhugun held ég að við tvær sjáum heiminn í allt öðru ljósi en margir hverjir! Við fáum skemmtilegt útsýni í hvern krók og kimaJ Í þessum töluðu (skrifuðu) orðum erum við að byrja nýtt ár og vona ég að það verði okkur jafn skemmtilegt og öll hin;);*

LOV JÚ GÖRL;)